25.01.2012 17:56:24 / irstelpur4
fundurinn fellur niður vegna dræmrar mætingar. Reynt verður að hafa fundinn á föstudagskvöld klukkann 19.30 í staðinn. Látið foreldra ykkar vita og segið þeim frá þessari síðu svo þeir geti sjálfir fylgst með! Mjög mikilvægt er að báðir eða annað foreldri allra mæti, annars komast þau skilaboð sem ég ætla til þeirra og ykkar aðeins til helmings allra.
»
24.01.2012 15:10:35 / irstelpur4
Æfingin fellur niður í dag. Völlurinn er á kafi og ég orðinn slappur í þokkabót. Munið svo að láta foreldra ykkar vita með foreldrafundinn sem er klukkann 20.00 annað kvöld (miðv.d.) í Leiknishúsinu! Bannað að klikka á þessu!
»
23.01.2012 22:08:44 / irstelpur4
Stelpur, muna að láta foreldra ykkar vita af foreldrafundinum sem er næsta miðvikudagskvöld (25. janúar). Fundurinn er klukkann 20.00 í Leiknishúsinu. Láta vita við fyrsta tækifæri og svo fáið þið miða á æfingu á morgun.
»
19.01.2012 16:53:22 / irstelpur4
Á morgun föstudaginn 20.janúar verður fundur. Fundurinn byrjar kl 15.00 og verður bara inni í klefa í Leiknishúsinu. Mikilvægt að allir mæti og taki þátt í fundinum. Þið þurfið ekki að taka með ykkur æfingadótið nema þið viljið leika ykkur sjálfar eftir fundinn. Geri ráð fyrir að fundurinn taki smá tíma.
»
13.01.2012 09:54:24 / irstelpur4
Æfingin í dag er klukkan 15.00 á Leiknisvelli eins og venjulega og 3fl verður líklegast með okkur. Vera tilbúnar til að hefja æfinguna á réttum tíma. Takið frá næsta sunnudag, við spilum æfingaleik við KR í Egilshöllinni. Mæting á sunnudaginn er kl: 14.25 og byrjar leikurinn kl 15.00.
. Veit ekki alveg með búningaaðstöðu fyrir okkur en það ætti ekki að vera vandamál, best er samt að mæta tilbúnar til að taka af allan vafa.
»
05.01.2012 23:41:38 / irstelpur4
Það er æfing á morgun (föstudaginn) kl: 15.00 á Leiknisvelli eins og hefur alltaf verið. Ég vil fá góða mætingu á þessa æfingu.
Kveðja Brynjar
»
03.01.2012 07:45:09 / irstelpur4
Afsakið stelpur en það varð ruglingur hjá mér hvað varðar næstu æfingu. Næsta æfing er ekki í dag heldur næsta fimmtudag kl 16.30, þann 5 janúar. Ég er búinn að senda skilaboð til allra um þetta en endilega látið þetta ganga til þess að vera viss um að allir hafi frétta þetta
Brynjar
»
21.12.2011 13:26:00 / irstelpur4
Þorrablót ÍR
Sælir ÍR ingar! Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir.......Þorrafagnaður ÍR í janúar. Þetta verður stærðarinnar hátíð og ætlum við að taka höndum saman, ÍR ingar sem og aðrir sem tengjast hverfinu, og hafa gríðarlega gaman. Hvetjum við ykkur að smala saman vinum úr félagin eða brottfluttum og koma og gleðjast saman, eitthvað er um að fólk bjóði í heimahús í hverfinu og rölti sér svo á samkomuna. Verðinu er haldið í lágmarki en til þess þurfum við mikinn fjölda fólks. Athugið að maturinn verður mjög fjölbreyttur og vel úti látinn og íþróttahús Seljaskóla verður sett í veislubúning þennan dag.....mjög skemmtileg tilbreyting. Nú er um að gera að kaupa miða, en miðasala er hafin á www.ir.is (kreditkort). Miðar verða svo seldir á skrifstofu ÍR, hjá Braga í Leiksport Hólagarði, í Fiskbúð Hólmgeirs í Mjódd og Noon&Súper Sól í Hólmaseli fljótlega í næstu viku. Það er um að gera að koma miðanum í jólapakkann, hvað annað :-) Athugið að það er 18 ára aldurstakmark.
http://www.ir.is/UmIR/Thorrafagnadur/
»
18.12.2011 18:23:20 / irstelpur4
Flott frammistaða á jólamótinu stelpur, erfitt að vera bara með einn varamann en þið börðust samt sem áður allan tímann og gerðuð vel. Nú er komið jólafrí og lær ég vita hér á blogginu hvenær æfingar hefjast aftur ásamt því að senda skilaboð á ykkur alla.
Gleiðleg jól
»
15.12.2011 19:25:01 / irstelpur4
Æfingin föstudaginn 16 desember verður kl 15.00 að venju á Leiknisvelli. Þar sem þetta er síðasta æfing fyrir Jólamótið og jafnframt fyrir jólafrí þá höfum við bara gaman. Tökum létta upphitun, reitarbolta og spilum svo alla æfinguna.
Minni svo á að það er mæting kl 14.50 í Egilshöllina á laugardaginn. Fyrsti leikur er kl 15.30 og því eigið þið að vera tilbúnar fyrir upphitun og fund fyrir leik kl 15.10. Munið eftir legghlífum og smá nesti, má alltaf reikna með smá töfum í svona mótum
Brynjar Óli
»
14.12.2011 20:40:02 / irstelpur4
Æfingin á morgun (fimmtudaginn 15.des) verður á Leiknisvelli á sama tíma og venjulega. Það verður sameiginleg æfing með 3 flokki þar sem Bjarni kemst ekki.
Brynjar
»
09.12.2011 12:50:35 / irstelpur4
Æfingin í dag verður á Leiknisvelli kl 17:30 í dag.
»
08.12.2011 16:46:39 / irstelpur4
Fótboltafjör verður haldið í Seljaskóla laugardaginn 10. desember næstkomandi fyrir iðkendur í 8-5. flokk karla og kvenna. Við hvetjum alla til að mæta. Hver aldurshópur í yngriflokkum kemur á þeim tímum sem eru auglýstir hér í fylgiskjali. Klikkið á fótboltafjör og þá sjáið þið dagskránna. Allir iðkendur eiga að taka pabba og mömmu með. Iðkendur flokkana ætla að spila fótbolta við foreldra. Aðrir fjölskyldumeðlimir eru alltaf velkomnir og auðvitað amma og afi.
Við hvetjum einnig eldri iðkendur og foreldra þeirra til að koma og kíkja við. Meistaraflokkar félagsins verða með kaffibasar og jólagjafamarkað.
Viljum bara sjá sem flesta.
»
06.12.2011 15:08:56 / irstelpur4
Í dag fellur æfingin niður en þær sem hafa verið með 3fl og treysta sér þangað gera það að sjálfsögðu. Annars er dagskráin þessa vikuna svona.
Miðvikudagur: Frí
Fimmtudagur: Grunnur á Leiknisvelli og 3.fl á Ír-velli (báðar æfingarnar byrja kl 16.30)
Föstudagur: 15.00 á Leiknisvelli
Ef það er 6 stiga frost eða meira þá eru ekki æfingar samkvæmt reglum ÍR og þeirra sem standa að íþróttaiðkun barna -og unglinga. Þess vegna er mikilvægt að þið fylgist einnig vel með veðrinu í vetur og foreldrar ykkar einnig, þá getið þið sjálfar séð hvort það sé æfing eða ekki.
Brynjar
»
23.11.2011 14:19:24 / irstelpur4
Meistaraflokkar ÍR og Leiknis í fótbolta mætast á föstudaginn í minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson á ÍR-vellinum klukkan 18:00. Í fyrsta sinn með Andra Marteins og Willum sem þjálfara þessara tveggja liða.
Frítt er á leikinn en frjáls framlög eru vel þegin í minningarsjóð Hlyns. Hvetjum við því alla til að mæta, úr öllum deildum og fáum aðra með okkur.
Hlynur, var 18 ára gamall þegar hann varð bráðkvaddur þann 25. nóvember 2009 á æfingu hjá ÍR, en hann iðkaði knattspyrnu hjá félaginu ásamt því að þjálfa yngri iðkendur og gegna ýmsum störfum innan félagsins.Hann gerði ekki bara marga frábæra hluti í þágu félagsins heldur var hann einnig virkur í félagslífi og duglegur námsmaður.
Í sumar var haldið mót fyrir yngri flokka sem kallast Hlynsmót og er stefnt að því að hafa það sem árlegan viðburð en það gekk vel fyrir sig í sumar þar sem skipt var í deildir úr Evrópu í stað A, B, C eða D liða. Það var þá enska, ítalska, spænska og þýska deildin.
Félögin hvetja sem flesta til þess að styrkja málefnið og í leið sjá hörkuleik í Breiðholtinu. Þeir sem sjá sér ekki fært um að mæta á leikinn og vilja minnast Hlyns geta gefið frjálst framlag inn á reikn: 0115-05-60550 kt: 411209-0160
»
Síður:
1 2 3 ...
13